|
gunnipalli.blogspot.com
|
|
|
föstudagur, október 28, 2005
miðvikudagur, mars 23, 2005
LAST NIGHT... Í gær fór ég á barinn (á virkum degi) í fyrsta skiptið síðan Guðrún fæddist.Þetta var auðvitað helvíti gaman og þremur rauðvínsglösum síðar var ég orðinn helvíti málglaður og átti síðar mjög auðvelt með að sofna um nóttina.Það sem einkennir morguninn hjá mér núna er að Guðrúnu er alveg sama þó pabbi hafi verið að drekka í gærkvöldi (Djöfull hljómar þetta illa) og því þarf mar að vera kominn á lappir klukkan 7:00 horfandi myglaður framan í spegilinn á meðan mar hitar pelann......jesuss Annars ætlum við hjónin að vera með partý í kvöld og svo brunum við norður á morgun og verðum þar yfir páskana. ...TONIGHT
miðvikudagur, mars 09, 2005
HÆTTUR AÐ BLOGGA...........NAHHH....EKKI ALVEG Ég hef bara haft svo margt og mikið að gera undanfarnar vikur að blogg árátta mín hefur bara gufað upp......í bili allavega. Annars er það að frétta að við lukum við að gera Quarashi video um daginn....reyndar er því ekki alveg lokið,það eru smá breytingar eftir en vegna þess hve mikið lá á því að koma myndbandinu til japans þá hefur útgáfa af myndbandinu verið komið á netið. held að það sé hægt að sjá það á quarashi.simblogg.is..... nóg í bili
fimmtudagur, febrúar 03, 2005
THE APPRENTICE Ég missti varla af þætti núna í vetur þegar gæjinn með hárkolluna rak fólk og setti fyrir verkefni.....eins og að selja ís á götuhorni eða hanna nýja pepsí flösku. En núna er Donald að fá "samkeppni".....hann er víst framleiðandi af þessari hugmynd en það er THE APPRENTICE 2....og hver verður Host-inn?????? júbb....the jaibird her self MARTHA STEWART read all about it here
þriðjudagur, febrúar 01, 2005
SINGIN IN THE RAIN Var að sjá þessa auglýsingu um daginn....algjört dúndur....hehehe
þriðjudagur, janúar 25, 2005
HÆBBB... Kíkið á nýja videoið hans Spike Jonse fyrir hana Björk okkar....athh það þarf að smella á Medulla Playerinn
sunnudagur, janúar 23, 2005
Um helgina var sannkölluð kvikmynda-helgi á víðimelnum,verð að játa það að ég hef ekki horft á svona margar myndir á svona stuttum tíma í mjög langan tíma.Horfðum fyrst á myndina Meet the Fockers sem er eiginlega alveg eins og fyrri myndin nema hvað að nú hafa Dustin Hoffman og Barbara Streisand bæst við í leikarahópinn.Mæli með henni sem skemmtun yfir sjónvarpi (algjör óþarfi að spandera 800 kalli í bíó til að sjá þessa mynd).Önnur myndin var algjört surrpise, Lemony Snickets Unfortunate Events er þrælskemmtileg fjölskyldumynd með svörtum húmor þar sem jim Carrey fer á kostum í hlutverki Count Olaf þetta er mynd sem ég á most def eftir að kaupa á DVD. Á laugardagskveldinu horfðum við síðan á Forgotten sem er spooky thriller sem fer síðan í algjöra vitleysu í lokin og í sannleikan sagt þá veit ég ekki alveg hvernig julianne moore og Gary sinise datt í hug að taka þátt í þessu.Mun örugglega gleyma þessari mynd fljótlega.Seinni laugardagsmyndin var síðan "meistaraverkið" Collateral þetta er fín mynd sem frúin var kannski ekki alveg að fíla en það var eitthvað við HD kvikmyndatökuna og músikina sem gerði hana eftirtektaverða og þess virði að horfa á.Mæli með henni Fyrir utan þetta video gláp þá var bara borðaður góður matur og göngutúr með Guðrúnu í vagninum....hmmm.......erfitt líf mar |
|